Spurningar og svör

Hér eru svör við algengustu spurningum um bílslys, einkenni og bótarétt á Íslandi.

Um einkenni

Geta einkenni komið fram síðar eftir bílslys?

Já, mjög algengt. Líkaminn framleiðir streituhormón í áfalli sem geta deyft verkina. Einkenni eins og hálsverkir, höfuðverkur, svimi og þreyta koma oft ekki fram fyrr en klukkustundum eða dögum síðar. Sumir upplifa ekki einkenni fyrr en eftir viku eða meira.

Hvaða einkenni eru algengust eftir bílslys?

Algengustu einkennin eru:

  • • Hálsverkir og stífni (whiplash)
  • • Bakverkir
  • • Höfuðverkur
  • • Svimi og óstöðugleiki
  • • Þreyta og orkuleysi
  • • Einbeitingarerfiðleikar
  • • Svefntruflanir

Er eðlilegt að finna ekki fyrir neinu strax?

Já, mjög eðlilegt. Adrenalín og önnur streituhormón geta deyft verki í nokkrar klukkustundir. Þetta er náttúruleg vörn líkamans. Þetta þýðir ekki að engin meiðsl séu til staðar. Þau geta komið í ljós síðar þegar hormónin minnka.

Hvað ef einkenni eru mjög væg?

Jafnvel væg einkenni ætti að taka alvarlega. Smávægilegir verkir geta aukist með tímanum. Vægur höfuðverkur getur verið merki um heilahristing. Það er betra að láta athuga einkenni snemma en að bíða og sjá hvort að þau versni.

Um læknishjálp

Þarf ég að fara til læknis eftir minniháttar bílslys?

Ef þú finnur fyrir einhverjum einkennum - já. Jafnvel þó slysið virðist minniháttar og þér finnist einkennin væg er mikilvægt að fá læknisfræðilega skráningu. Þetta getur verið mikilvægt síðar ef þú þarft að sækja um bætur, og það tryggir að þú fáir viðeigandi meðferð.

Hvenær á að fara á bráðamóttöku vs. heimilislækni?

Farðu á bráðamóttöku ef:

  • • Þú finnur fyrir miklum höfuðverk
  • • Þú upplifir ógleði eða uppköst
  • • Þú ert ruglaður eða átteikinn
  • • Þú hefur sjóntruflanir
  • • Þú finnur fyrir alvarlegum verkjum
  • • Þú ert meðvitundarlaus eða verður það

Farðu til heimilislæknis ef: Einkennin eru væg til miðlungs - stífni, vægnir verkir, vægur höfuðverkur, létt þreyta.

Hvað ef ég fór ekki til læknis strax en finn fyrir einkennum núna?

Það er aldrei of seint. Farðu til læknis núna og útskýrðu að einkennin tengist bílslysi sem átti sér stað (dagsetning). Læknirinn getur enn skráð einkennin og tengingu þeirra við slysið. Þó skráningin verði betri ef þú ferð strax, er það miklu betra að fara seint en aldrei.

Kostar eitthvað að fara til læknis?

Já, hefbundin komugjöld til lækna gilda. Ef þú átt rétt á bótum vegna slyssins getur þessi kostnaður fallið undir bætur sem þú færð frá tryggingafélaginu. Geymdu kvittanir fyrir öllum kostnaði.

Um bótarétt

Hvernig get ég kannað hvort ég eigi rétt á bótum?

Bótaréttur fer fyrst og fremst eftir afleiðingum og alvarleika slyss. Fagaðilar geta metið mál þitt og gefið mat á bótarétti og hugsanlegri bótafjárhæð.

Hvað ef slysið var mér að hluta til að kenna?

Þú átt samt rétt á bótum. Bæturnar geta minnkað í hlutfalli við sök þína. Ef þú átt 20% sök þá færðu 80% af fullum bótum. Ef þú átt 50% sök þá færðu 50% af bótum. Ef þín sök var meiri en 50% þá verða bæturnar lægri í samræmi við það.

Hvað ef tryggingafélagið býður mér uppgjör?

Flýttu þér ekki að samþykkja. Gættu þess að öll einkenni séu komin fram og þú vitir hverjar afleiðingarnar verða áður en þú samþykkir uppgjör. Ef þú ert í vafa um hvort tilboðið sé sanngjarnt getur verið gagnlegt að fá faglegt mat.

Hversu langan tíma hef ég til að gera kröfu?

Fyrningarfrestur fyrir kröfur vegna líkamstjóns er almennt 2 ár frá slysdegi. Það er miklu betra að bregðast við fyrr vegna þess að því fyrr sem mál er sett í gang, því betra. Ekki bíða þar til fresturinn er að renna út.

Þarf ég lögfræðing?

Mælt er með því að leita til fagaðila með sérþekkingu á skaðabótarétti.

Hvað kostar fagleg aðstoð?

Það fer eftir þjónustunni. Tryggingafélgið greiðir yfir leitt a.m.k. hluta þess kostnaðar. Margir sem vinna að slíkum málum vinna á grundvelli árangursþóknunar. Þeir taka hlutfall af bótum ef máli er lokið með árangri. Þannig kostar það ekkert fyrirfram. Aðrir geta tekið fast gjald. Bestu þjónusturnar bjóða ókeypis frummat svo þú getir fengið mat á málinu án kostnaðar.

Um ferlið

Hvað gerist ef ég geri ekki neitt?

Ef þú gerir ekki neitt missir þú mögulega af bótum sem þú átt rétt á. Einkenni geta versnað án viðeigandi meðferðar og án læknisfræðilegrar skráningar er erfitt að tengja einkenni við slysið síðar. Jafnvel þó þér finnist allt í lagi núna er mikilvægt að fara til læknis ef einkenni koma fram.

Hvað ef mótaðili vill að við gerum einkasátt?

Farið varlega. Einkasáttir geta verið í lagi fyrir mjög minniháttar eignatjón þar sem enginn er meiddur og báðir aðilar eru sáttir. Ef meiðsli eru eða gætu komið í ljós síðar er miklu betra að fá faglega ráðgjöf og fara í gegnum tryggingafélög. Þau eru til þess.

Hversu langan tíma tekur bótamál?

Það er mjög mismunandi. Einföldum málum getur lokið á nokkrum vikum. Flóknari mál með langvarandi meiðslum eða ágreiningi geta tekið mánuði eða jafnvel ár. Þolinmæði er mikilvæg - flýttu þér ekki að samþykkja lágt tilboð bara til að klára málið.

Hvað ef ég er óánægður með niðurstöðu tryggingafélags?

Þú þarft ekki að sætta þig við fyrsta tilboðið. Þú getur beðið um endurskoðun, lagt fram viðbótargögn, eða leitað faglegrar aðstoðar til að semja fyrir þig. Ef samningar ganga ekki er mögulegt að höfða mál fyrir dómstólum, þó það sé sjaldnast nauðsynlegt.

Ef þú ert enn í vafa

Ef þú hefur fleiri spurningar eða ert ekki viss um næstu skref getur verið gagnlegt að fá faglegt mat á aðstæðum þínum.

Ef þú ert í vafa um hvort bílslys geti haft áhrif á bótarétt þinn er mjög mikilvægt að fá faglegt mat á málinu.

Integrum aðstoðar fólk við að meta hvort bótaréttur geti komið til álita eftir bílslys.