Algeng mistök eftir bílslys

Bílslys eru oft áfall og auðvelt er að gera mistök sem geta haft afleiðingar síðar. Hér eru algengustu mistökin og hvernig þú getur eftir atvikum forðast þau.

Mistök á vettvangi

Að gera lítið úr áverkum

Ekki gera lítið úr áverkum þínum eða mögulegum afleiðingum slyssins á vettvangi, áður en afleiðingar hafa eftir atvikum komið fram, sem oftast tekur einhvern tíma.

Hvað á að gera í staðinn:

Skiptu á upplýsingum við aðra aðila og tilkynntu lögreglunni ef við á. Leitaðu til læknis um leið og einkenni koma fram. Láttu fagaðila um að meta afleiðingar slyssins síðar í bótaferlinu.

Að taka ekki myndir

Margir gleyma að taka myndir af vettvangi. Án myndanna getur verið erfitt að sanna hvað gerðist ef ágreiningur kemur upp síðar.

Hvað á að gera í staðinn:

Taktu myndir af öllum bílum frá mörgum sjónarhornum, skemmdum, staðsetningu bíla, götuskiltum, slóðarsporum og öðru sem gæti skipt máli.

Að hverfa frá vettvangi

Jafnvel þó slysið virðist minniháttar og enginn sé slasaður er ekki rétt að yfirgefa vettvang áður en skipst hefur verið á upplýsingum.

Hvað á að gera í staðinn:

Stöðvaðu alltaf, skiptu á upplýsingum með öðrum aðilum og tilkynntu lögreglunni ef við á. Fáðu slysaskýrslu ef hún er gefin út.

Mistök eftir slysið

Að fara ekki til læknis

Þetta eru stærstu mistökin. Einkenni geta komið fram eða aukist síðar og þá er mikilvægt að hafa leitað til læknis beint í kjölfar slyssins og um leið og einkenni koma fram eða versna.

Hvað á að gera í staðinn:

Farðu til læknis eins fljótt og auðið er ef þú finnur fyrir einhverjum einkennum, jafnvel vægum. Ef engin einkenni koma fram fyrstu dagana en koma síðar, leitaðu þá til læknis og útskýrðu tengingu við slysið.

Að tilkynna ekki til tryggingafélags

Sumir halda að þeir þurfi ekki að tilkynna minniháttar slys en tryggingarskilmálar krefjast þess almennt að slys séu tilkynnt innan ákveðins tíma.

Hvað á að gera í staðinn:

Tilkynntu öll slys til tryggingafélagsins, jafnvel minniháttar. Þeir geta ráðlagt þér um næstu skref og það tryggir að réttur þinn sé varðveittur.

Að geyma ekki gögn

Ljósmyndir, slysaskýrslur, læknisfræðilegar skýrslur, kvittanir. Allt þetta getur verið mikilvægt síðar. Ef þetta er ekki gert þá getur það gert erfiðara fyrir við að sækja bætur.

Hvað á að gera í staðinn:

Búðu til möppu (prentaða eða stafræna) með öllum gögnum tengdum slysinu. Geymdu ljósmyndir, skýrslur, kvittanir og samskipti við tryggingafélag.

Að leita sér aðstoðar lögmanns of seint

Ef leitað er lögmanns of seint í ferlinu getur það leitt til þess að ekki sé hugað að mikilvægum þáttum í ferli bótamáls strax á fyrstu stigum.

Hvað á að gera í staðinn:

Leitaðu strax til lögmanns í kjölfar slyss og fáðu leiðbeiningar og góðar upplýsingar um hvaða atriðum þú þarft að huga að sjálfur og hvaða atriði lögmaðurinn sér um fyrir þína hönd. Við vafa, leitaðu faglegrar ráðgjafar.

Að vanmeta einkenni

„þetta er bara vægur höfuðverkur“ eða „bara smá stífni" - margir vanmeta einkenni í kjölfar slyss og hugsa að þau muni hverfа af sjálfu sér.

Hvað á að gera í staðinn:

Taktu öllum einkennum alvarlega. Ef eitthvað er óvenjulegt eða veldur óþægindum í kjölfar slyss, leitaðu til læknis. Það er betra að vera varkár en að sjá eftir því síðar.

Mistök í samskiptum

Að hafa samband sjálfur við mótaðila eða tryggingafélag

Hafirðu leitað þér aðstoðar lögmanns er ákjósanlegt að lögmaðurinn sjái almennt um samskipti við mótaðila eða tryggingafélagið, annars er hætt við að ekki allar upplýsingar skili sér t.d. til lögmannsins sem hefur það hlutverk að gæta þinna hagsmuna og tryggja að fullnægjandi gögn og upplýsingar liggi fyrir vegna málsins fyrir þína hönd. Gefðu ekki af þér of miklar skoðanir á heilsu þinni gagnvart þessum aðilum.

Hvað á að gera í staðinn:

Leitaðu til lögmanns þíns hafirðu einhverjar spurningar og vísaðu öllum spurningum um einkenni og meiðsl til lögmannsins sem sér um málið þitt. Þú þarft ekki að tala beint við mótaðila eða tryggingafélagið sem fer með málið.

Að sleppa því að leita aðstoðar því "þetta muni skána" eða "verða í lagi"

Margir vilja ekki vera „vesen“ og telja sig eiga einfaldlega að þola einkenni sem koma fram í kjölfar slyss. Þetta getur leitt til þess að fólk fær ekki þá aðstoð sem það á rétt á.

Hvað á að gera í staðinn:

Þú gætir átt rétt á bótum ef þú finnur fyrir einkennum eða afleiðingum slyss sem geta haft áhrif á líf þitt. Í slíkum tilfellum er réttlætanlegt að kanna bótarétt, og í raun alltaf betra að setja málið í farveg heldur en ekki til að tryggja stöðu sína.

Tímasetning skipt máli

Mörg af þessum mistökum tengjast því að bregðast ekki nógu hratt við. Hér er tímalína yfir mikilvæg skref:

  • Strax:Tryggðu öryggi, skipstu á upplýsingum, taktu myndir.
  • Sama dag:Tilkynntu tryggingafélagi, leitaðu til læknis ef einkenni eru til staðar.
  • 1-3 dagar:Fylgdu eftir einkennum, farðu til læknis ef þau koma fram eða versna.
  • 1 vika:Farðu yfir öll gögn, athugaðu hvort eitthvað vanti upp á.
  • 2 vikur:Ef einkenni eru viðvarandi, leitaðu til lögmanns til að tryggja að málið sé í réttum farvegi.

Algengar spurningar

Hvað ef ég hef þegar gert eitthvað af þessum mistökum?

Gerðu það sem þú getur til að leiðrétta stöðuna. Ef þú fórst ekki til læknis, farðu núna. Ef þú hefur ekki tilkynnt tryggingafélagi, gerðu það núna. Ef þú hefur ekki leitað til lögmanns, gerðu það núna. Útskýrðu aðstæður og fáðu ráðleggingar.

Þarf ég að leita aðstoðar lögmanns?

Í flestum bótamálum er ákjósanlegt eða nauðsynlegt að leita sér lögmannsaðstoðar.

Hversu langan frest hef ég til að tilkynna slys eða gera kröfu um bætur?

Tilkynningarfrestur er almennt 1 ár frá því að þú máttir gera þér grein fyrir því að varanlegar afleiðingar yrðu af slysi. Þar sem þetta er matskennt viðmið er almennt best að tilkynna slys innan 1 árs frá slysdegi til að tryggja stöðu sína. Fyrningarfrestur er almennt 4 ár eða 10 ár fyrir líkamstjón, en það getur verið mismunandi. Þess vegna er mikilvægt að bregðast fljótt við og halda kröfunni opinni þar til allar afleiðingar eru ljósar.

Hvað ef ég samþykkti uppgjör en einkenni versnuðu síðar?

Almennt er erfitt að sækja viðbótarbætur að frágengnu lokauppgjöri, og sérstaklega ef það hefur verið undirritað án fyrirvara, þó það sé mögulegt í afmörkuðum tilfellum. Þess vegna er mikilvægt að flýta sér ekki um of við uppgjör mála.

Ef þú ert í vafa um hvort bílslys geti haft áhrif á bótarétt þinn er mjög mikilvægt að fá faglegt mat á málinu.

Integrum aðstoðar fólk við að meta hvort bótaréttur geti komið til álita eftir bílslys.